Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Seðlabanki Íslands skrifar undir samning við ÍAV um endurbætur og stækkun

Seðlabanki Íslands skrifar undir samning við ÍAV um endurbætur og stækkun

345
0
Mynd: IAV.is

Samningur um endurbætur og stækkun á byggingu Seðlabanka Íslands var undirritaður rafrænt þann 29. desember.

<>

Verkið felst í að rífa niður og endurbyggja rými á jarðhæð, 1. hæð og 2. hæð ásamt því að reisa nýbyggingu í hjarta bankans í tengslum við aðalinngang og móttöku.

Gerðar eru miklar kröfur varðandi aðgengisstýringu og sem minnsta truflun á daglegri starfsemi bankans. Áætluð verklok eru 1. mars 2024.

Mynd: IAV.is

Verkefnisstjóri fyrir ÍAV er Hafsteinn B. Gunnarsson og eru framkvæmdir við aðstöðusköpun og rif í fullum gangi auk þess sem þegar er byrjað á vinnu við uppbyggingu.

Mynd: IAV.is

Meðal undirverktaka verða Brot, Stjörnublikk og Kraftlagnir en rafvirkjadeild ÍAV mun annast raflagnir.

Heimild: IAV.is