Arkitektastofan Nordic Office of Architecture, með höfuðstöðvar í Noregi og rótgróna starfsemi á Íslandi hefur sameinast tveimur dönskum aritektastofum og með því myndað eitt stærsta arkitektasamfélag á Norðurlöndum.
Margverðlaunuðu arkitektastofurnar Rubow Arkitekter og Norconsult Arkitektur sameinuðust Nordic Office og eftir sameininguna munu starfa þar um 500 manns í Noregi, Danmörku og á Íslandi.
Stofan mun verða leiðandi í húsnæðis-, heilbrigðis-, flugvalla- og menntaverkefnum á Norðurlöndum. Nordic í Danmörku mun einnig bæta við sig 200 arkitektum sem koma til með að efla heildarþekkingu stofunnar á sviði skipulags, sjálfbærni og fjölda annarra sérgreina.
„Samstarfið þvert á fræðigreinar og landamæri hefur verið mikilvægur þáttur í velgengni Nordic á danska markaðnum. Við höfum byggt upp einstaka sérfræðiþekkingu á sviðum eins og flugvalla- og heilsugæslubyggingum og nú höfum við tækifæri til að starfa á nokkrum markaðssvæðum“, segir Sofie Peschardt, sem hingað til hefur leitt Nordic í Danmörku.
Sofie hefur átt samstarf við skrifstofurnar í Osló og Reykjavík í nokkur ár og leggur áherslu á gildi þess að geta boðið sérfræðiþekkingu í hinum mismunandi verkefnum.
„Við höfum unnið framúrskarandi verkefni og búið til sjálfbæran og margverðlaunaðan arkitektúr í meira en 50 ár sem Nordic Office of Architecture, Rubow Arkitekter og Norconsult Arkitektur.
Við erum nú að sameina reynslu okkar, þekkingu og menningu til að skapa enn betri arkitektúr fyrir fólk, umhverfið og samfélagið, á staðnum og á alþjóðavettvangi – Þessi fjárfesting mun styrkja stöðu Nordic á danska markaðnum, auðga verkefnasafn okkar og efla sérfræðiþekkingu þvert á fræðigreinar og landamæri.
Við hlökkum til að hefja samstarfið við nýja danska kollega okkar“, segir Hallgrímur Þór Sigurðsson, fráfarandi framkvæmdastjóri Nordic á Íslandi. Halldóra Vífilsdóttir mun taka við starfi framkvæmdastjóra 1. febrúar.
Heimild: Frettabladid.is