F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Bryggjuhverfi vestur – Efnisflutningar og farghaugar, útboð nr. 15734
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Lýsing á verkefni fyrir auglýsingu: Verkið felst í að taka á móti efni úr sjó sem dælt er í pitt (móttökusvæði) og flytja á ákveðin svæði innan framkvæmdasvæðis. Verktaki skal byggja pitt (móttökusvæði) sem efni úr sjó verður dælt í. Efni til byggingar pitts til að taka á móti efni úr sjó getur komið landleiðis eða af svæðinu.
Efni í landfyllingar og farghauga kemur sjóleiðis, annar verktaki mun sjá um efnisöflun og dælingu á land. Aðkoma að svæðinu landleiðis er frá Sævarhöfða.
Helstu magntölur eru:
Móttaka efnis, úr sjó, flutt í farghauga: 100.000 m³
Flutningur efnis, til staðar, í farghauga: 90.000 m³
Efni flutt í varnargarð: 40.000 m³
Áætluð verklok eru 31. desember 2026
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 25. janúar 2023. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 15. febrúar 2023.