Nú styttist óðum í að miklar framkvæmdir hefjist við fangelsið á Litla Hrauni á Eyrarbakka en þar á að fara að byggja nýtt þjónustuhús, nýja varðstofu og nýtt fjölnotahús. Kostnaður er um tveir milljarðar króna.
Húsin á Litla Hrauni er mörg hver orðin ansi gömul og lúin og því þykir löngu tímabært að fara í lagfæringar og endurbætur á fangelsinu. Þrjár nýjar byggingar verða byggðar á lóð fangelsisins og munu framkvæmdir hefjast á næstu vikum.
Halldór Valur Pálsson er forstöðumaður Litla Hrauns.
„Við höfum fengið ábendingar bæði frá alþjóðlegum eftirlitsaðilum og aðilum eins og Vinnueftirlitinu og öðrum um að bæði aðbúnaði sérfræðinga og starfsmanna sé ábótavant og núna erum við bara lögð af stað í það verkefni að bæta úr. Og það er verið að fara að byggja upp þrettán hundruð fermetra af byggingum og endurgera allt að tvö þúsund fermetra af eldi byggingum,“ segir Halldór Valur.
Halldór Valur segir verkefnið mjög flott og metnaðarfullt.
„Já, við erum mjög spennt fyrir þessu og við eru líka spennt að sjá hver aðferðafræðin verður við að byggja þetta því þarna er Framkvæmdasýsla ríkisins að prófa í fyrsta skipti svokallaða samstarfsleið við opinbera framkvæmd. Við erum svokallað „Pilot“ verkefni í því en þetta er flókið verkefni þar sem þú ætlar að reka fangelsið allan tíman á meðan,“ segir Halldór Valur.
Og eitthvað kosta þessar framkvæmdir.
„Já, það hafa verið veittir rétt um tveir milljarðar í verkefnið á fjárlögum síðustu tveggja ára.“
En hvenær hefjast framkvæmdir og hvenær verður þeim lokið?
„Við vonumst til þessa að framkvæmda tíminn verði um tvö ár frá frá því að við erum lögð af stað. Verktakarnir eru spenntir að fá að byrja veit ég og við erum bara að reyna að hafa hraðar hendur við að undirbúa allt sem hægt er að hafa klárt áður en það verður byrjað,“ segir Halldór Valur.
Varðturninn á Litla Hrauni verður fjarlægður við framkvæmdirnar.
„Já, þegar þú ert að reyna að skapa andrúmsloft, sem þú vilt að betrun og jákvætt hugarfar ráði ferð þá er eftirlits turn, sem lítur út eins og vélbyssuhreiður kannski ekki æskileg bygging þar inn í miðju,“ segir Halldór Valur.
75 fangar eru á Litla Hrauni í dag og starfsmenn eru um 70 í 60 stöðugildum.
Heimild: Visir.is