Að sögn Vilhjálms Jónssonar bæjarstjóra virkaði búnaðurinn sem skyldi þegar innra eftirlit Seyðisfjarðarkaupstaðar skoðaði kerfið þann 17.janúar en Heilbrigðiseftirlitið hefur ekki tekið sýni úr neysluvatninu síðan í haust. Leifur Þorkelsson hjá Heilbrigðiseftirliti Austurlands segir að sýni séu aðeins tekin fjórum sinnum á ári og var síðasta mæling í haust. Vilhjálmur telur geislabúnaðinn sem hreinsi vatnið ekki hafa verið bilaðan lengi en bendir á að athugasemd Heilbrigðiseftirlitsins hafi verið að um óverulega mengun hafi verið að ræða. Þó sé réttast að sjóða vatn sem ætlað er til drykkjar, sér í lagi handa börnum, öldruðum og þeim sem eru veikir fyrir, eins og kom fram á síðu bæjarins.
Viðgerð hefur farið fram
Á veitingastöðum og heimilum var vatn soðið í dag í kjölfar fréttanna, hraðsuðukötlum komið fyrir á hótelherbergjum og unnu starfsmenn bæjarins að því að hreinsa útaf vatnskerfinu í dag. Vilhjálmur telur að starfsmenn bæjarins hafi náð að hreinsa vatnskerfið í dag með því að hleypa út af því og koma hreyfingu á það. „Hleypt var útaf brunahönum í hverfum þar sem ekki er mikil hreyfing á vatninu en þar sem vatnið er í stofnæðum er það mjög fljótt að hreinsa sig.“ Vilhjálmur segir bæjarfélagið undirbúa uppsetningu viðvörunarbúnaðar svo tilkynningar um bilanir berist strax. Annað sé óviðunandi.
Niðurstöður rannsóknar á sýnum af neysluvatni Seyðfirðinga eftir viðgerð og hreinsun kerfisins ættu að vera aðgengilegar um miðjan dag á morgun.
Heimild: Rúv.is