Norðurorka hf. óskar eftir tilboðum í síðasta áfanga lagningar nýrrar stofnæðar hitaveitu milli Akureyrar og Hjalteyrar.
Áfanginn, sem þetta tilboð nær til afmarkast í norðri við dælustöð Norðurorku nærri Skjaldarvík og í suðri við pípuenda norðan við gatnamót Hlíðarbrautar og Hörgárbrautar á Akureyri, ásamt tengingum við núverandi lagnakerfi Norðurorku.
Verkið felst í stórum dráttum í greftri, fyllingu og pípulögn ásamt öllum frágangi. Lengd stofnæðarinnar er um 5,1 km. Stofnæðin er DN500 stálpípa í ø710 mm hlífðarkápu úr plasti. Á lögnina koma útloftunarlokar, tæmingar ásamt lögnum frá þeim.
Einnig er um að ræða lagningu þrýstilagnar skólps frá skólpdælustöð við Sjafnargötu að skólpdælubrunni við Austursíðu 2. Þrýstilögnin er peh225
- Framkvæmdartími 1. febrúar – 31. október 2023
- Kynningarfundur 19. janúar. 2023, kl. 13:00
- Fyrirspurnatíma lýkur 23. janúar. 2023
- Svarfrestur rennur út 26. janúar. 2023
Útboðsgögn afhent: | 16.01.2023 kl. 12:00 |
Skilafrestur | 30.01.2023 kl. 13:00 |
Opnun tilboða: | 30.01.2023 kl. 13:00 |
Sendið póst á Magnús Magnússon hjá Verkís (mm@verkis.is) ef óskað er eftir útboðsgögnum.