Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í að leggja nýtt gervigras á Kópavogsvöll. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES).
Lýsing á útboði:
- Útvegun og fullnaðarfrágang gervigrass á Kópavogsvöll
- Upprif og færsla á núverandi gervigrasmottu og innfyllingu.
- Prófun á fjaðurlagi og viðgerðir
- FIFA Quality Pro prófun og FIFA Certificate vottun
Helstu magntölur eru:
- Flatarmál gervigrass 8.250 m2
Verkinu skal skila fullfrágengnu 15.maí 2023.
Útboðsgögn afhent: | 13.01.2023 kl. 08:01 |
Skilafrestur | 13.02.2023 kl. 11:00 |
Opnun tilboða: | 13.02.2023 kl. 11:01 |
Bjóðendur skili inn tilboði rafrænt inn í TendSign útboðskerfið fyrir kl.11:00 mánudaginn 13. febrúar 2023.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign útboðskerfinu og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.