Home Fréttir Í fréttum Naustalækur ehf. hefur fengið úthlutað lóð fyrir fjölbýlishús á Húsavík

Naustalækur ehf. hefur fengið úthlutað lóð fyrir fjölbýlishús á Húsavík

363
0
Stórigarður 18 horft að norðvestan

Naustalækur ehf. hefur fengið úthlutað lóð fyrir fjölbýlishús að Stóragarði 18 á Húsavík. Þar hyggst félagið reisa tuttugu og fimm íbúða hús á fimm hæðum.

<>

Í húsinu eru fimm mismunandi útfærslur af íbúðum sem ættu að henta fjölbreyttum hópi íbúa á öllum aldri enda verður að sjálfsögðu lyfta í húsinu.

Stórigarður 18 horft að norðan

Næg bílastæði verða einnig við húsið. Öllum íbúðum fylgir geymsla í kjallara.
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við uppsteypu þegar vorar og afhenda kaupendum tilbúnar íbúðir í febrúar 2025

Samið var við Trésmiðjuna Rein um að taka verkið að sér. Trésmiðjan Rein ásamt undirverktökum hafa séð áður um að byggja fyrir Naustalæk ehf.

Deiliskipulag og staðsetning Stóragarðs 18

Því bæði Útgarður 6 sem klárast fyrir 2 árum síðan og Útgarð 2 sem er í byggingu nú eru verkefni sem Trésmiðjan Rein hefur verið að byggja fyrir Naustalæk ehf.

Heimild: Facebooksíða Steinsteypir ehf