Vegagerðin býður hér með út steyptar vegaxlir ásamt lögnum fyrir fráveitu og rafbúnaðí Almannaskarðsgöngá Hringvegi (1).
Verkið felur í sérgerð steyptra vegaxla ásamt fráveitulögn, ídráttarrörumogjarðstreng þar undir. Við núverandi fráveitukerfi ganganna koma ný niðurföll og sandfangsbrunnar með vatnslás úr járni sem tengjastinn á núverandi jarðvatnslagnir.
Að auki skalfæra tilnúverandi niðurföll í skálum. Leggja skal11kV jarðstrengfyrir Rarik í vegöxl í gegnum jarðgöngin.
Helstu magntölur verksins eru eftirfarandi:
- Niðurföll 14 stk.
- Sandfangsbrunnar 7 stk.
- Vinna við lagningu jarðstrengs 11 kV 350 m
- Vinna við lagningu á 20 mm ljósleiðararöri 1.350 m
- Ídrattarrör 32 mm fyrir kantlýsingu 2.650 m
- Ídrattarrör 50 mm 6.000 m
- Gegnumdráttarbrunnar 2 stk.
- Malbik 100 m2
- Kantsteinn 2.600 m
- Steyptar vegaxlir 2.200 m2
Verkinu skal að fullu og öllu lokið eigi síðar en 20. júní 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 3. janúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 17. janúar 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.