Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið: Ásland 4, 1. Áfangi – gatnagerð, fráveitu- og neysluvatnslagnir, ásamt lögnum fyrir hitaveitu, rafveitu og fjarskiptalagnir.
Ásland 4 er nýjasta uppbyggingarsvæðið í Hafnarfirði og afmarkast af Ásfjalli, íbúðabyggð Áslands 3 í norðaustri, Ásvallabraut í austri og suðri og nýrri íbúðabyggð í Skarðshlíð í vestri.
Helstu stærðir og magntölur fyrir hverfið eru eftirfarandi:
Lengd gatna | 2.700 m |
Uppúrtekt | 54.000 m3 |
Losun á klöpp í götustæði | 1.600 m3 |
Losun á klöpp í skurðstæði | 12.700 m3 |
Styrktarlag | 22.000 m3 |
Fyllingar | 21.000 m3 |
Malbik | 12.600 m2 |
Fráveitulagnir | 11.500 m |
Skurðir veitna | 7.100 m |
Verklok eru 1. júní 2024 með áfangaskilum 1. desember 2023.
Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á útboðsvef VSB verkfræðistofu (https://vsb.ajoursystem.net/tender).
Tilboð verða opnuð rafrænt mánudaginn 23. janúar 2023.