Verkkaupi óskar eftir tilboðum í Háaleitisbraut 125-149-Endurnýjun lagna.
Verkið felst í því að endurnýja vatns,- hita- og raflagnir við hús nr. 125-149 við Háaleitisbraut, ásamt heimlögnum, og tengja lagnir við stofna í Háaleitisbraut og Fellsmúla.
Núverandi hitaveita er tvöföld og liggja lagnir í hitaveitustokki sem verður ekki fjarlægður, nema að hluta til í Fellsmúla.
Útboðsgögn afhent: | 20.12.2022 kl. 14:30 |
Skilafrestur | 20.01.2023 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 20.01.2023 kl. 14:00 |
Sjá nánar útboðsgögn