F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Þróttur – Keppnisvöllur. Jarðvinna og hitakerfi, útboð nr. 15710
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Endurnýja skal vallarsvæðið að fullu með nýju snjóbræðslukerfi og frágangi
nærumhverfis í kringum völl. Gengið verður frá heimtaugum nýrra lagna inn í fyrirhugað
tæknirými í austurhluta stúku ásamt frágangi steyptrar botnplötu þar. Gengið verður
nýjum drenlögnum umhverfis völl auk frágangs á nýju vökvunarkerfi vallarins.
Vallarlýsing helst óbreytt en raflagnir í ljósamöstur verða endurnýjuð. Núverandi
grassvæði á skammhliðunum tveimur verða lækkuð í vallarhæð og núverandi
gervigras notað ofan á þessi tvö svæði. Sett verða upp boltanet aftan við mörk. Við
stúku verður skiltagirðing færð ofan á steyptan sökkul og gengið verður frá nýrri
lágreistri girðingu meðfram nyrðri langhlið vallarins.
Helstu magntölur verksins eru:
– Upprif á malbiki 9.850 m2
– Upprif á núverandi gervigrasi 8.570 m2
– Uppgröftur og tilflutningur eða brottakstur 3.550 m3
– Þjöppun núverandi fyllingar 11.750 m2
– Malarfylling 450 m3
– Jarðvinna vegna lagna 1.823 m
– Steyptar plötur 135 m2
– Fráveitulagnir 400 m
– Fráveitubrunnar 6 stk.
– Vatnslagnir 730 m
– Snjóbræðslulagnir 39.000 m
– Raflagnir 1.300 m
– Ídráttarbrunnar 9 stk.
– Jöfnunarlag 10.120 m2
– Nýtt malbik 1.220 m2
– Sögun malbiks 500 m
– Boltanet 80 m
– Þökulögn 600 m2
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 13. desember 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 10. janúar 2023.