Fimm teymi verða valin til þátttöku.
Í síðustu viku voru birtar á Evrópska efnahagssvæðinu auglýsingar FSRE um forval á arkitektahönnun byggingar fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu (HVH).
Óskað er eftir umsóknum frá teymum arkitekta sem taka vilja þátt í lokuðu samkeppnisútboði verkefnisins. Fimm teymi verða valin til þátttöku. Að því loknu tekur við þrepaskipt ferli, sem lýst er í útboðsauglýsingu. Að loknum fyrsta hluta samkeppninnar munu tvö teymi keppa um að hanna hina miklu byggingu.
Höfuðstöðvar löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, HVH, verður miðstöð þeirra sem gæta að lögum, reglu, björgun og öryggi almennings. Í miðstöðinni munu þessir aðilar fá nútímalega aðstöðu sem auðveldar til muna hina mikilvægu þjónustu og vernd sem veitt er almenningi.
Löggæslu- og viðbragðsaðilar sem hafa munu samastað í byggingunni verða:
· Landhelgisgæslan (LHG)
· Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH)
· Neyðarlínan (112)
· Ríkislögreglustjóri (RLS)
· Tollgæslan
· Landsbjörg
· Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) – skrifstofur
Umsóknir um þátttöku skulu berast í síðasta lagi kl. 12.00, 17. janúar næstkomandi. Frekari upplýsingar má finna hér á vef FSRE og á utboðsvefur.is.
Hér má sjá fréttabréf verkefnisins, en fyrsta tölublað þess verður dreift til starfsfólks fyrrgreindra aðila.
Heimild: FSRE.is