Aðili sem sótti um lóð við Brekadal í Reykjanesbæ krafðist endurúthlutunar vegna þess að úthlutunarreglum sveitarfélagsins hafi ekki verið rétt fylgt þegar lóðarúthlutun fór fram á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á dögunum.
Málið var tekið fyrir á síðasta fundi sama ráðs og fært til bókar að “þar sem sveitarfélagið fylgdi ekki til hlítar reglum um lóðaúthlutanir er úthlutun afturkölluð og skal lóðarúthlutun fara fram að nýju.”
Heimild: Sudurnes.net