Home Fréttir Í fréttum Armar hagnast um hálfan milljarð

Armar hagnast um hálfan milljarð

219
0
Armar er leigufyrirtæki í byggingageiranum. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Afkoma félagsins var 43% betri en árið 2020 þegar félagið hagnaðist um 349 milljónir.

<>

Hagnaður Arma, sem er leigufyrirtæki í byggingageiranum, nam hálfum milljarði króna á síðasta ári.

Það er 43% betri afkoma en árið á undan þegar félagið hagnaðist um 349 milljónir.

Rekstrartekjur félagsins námu 2,6 milljörðum króna og jukust um 18% á milli ára, úr 2,2 milljörðum árið 2020.

Mynd: Vb.is

Þá hækkaði eigið fé félagsins á milli ára úr 1,9 milljörðum króna í 2,3 milljarða. Í árslok námu eignir félagsins 4,6 milljörðum króna.

Heimild: Vb.is