Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Nýr leikskóli í Helgafellshverfi – Stoðveggir.
Verkið felur í sér stoðveggjagerð umhverfis tilvonandi leikskóla og jarðvinnu þeim tengdum. Um er að ræða Vefarastræti 2-6, lnr. 211651 í Mosfellsbæ þar sem fyrirhugað er að reisa leikskóla. Afmarkast verksvæði og aðstaða verktaka af lóðarmörkum.
Helstu magntölur:
- Steypa: 500 m3
- Bendistál: 48 tonn
- Mót: 2.850 m2
- Fyllingar: 500 m3
- Uppgröftur: 50 m3
Verkinu skal að fullu lokið 31. mars 2023 í samræmi við ákvæði útboðsgagna.
Útboðsgögn verða afhent í rafræna útboðskerfinu vso.ajoursystem.net frá og með föstudeginum 2. desember 2022.
Tilboðum skal skilað rafrænt í sama útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. desember 2022.