„Ég hef nú oft verið í eftirsóttum verkefnum en engu eins og þessu. Það er svakalegur áhugi á þessu hverfi.
Sem er svo sem ekki skrítið enda er ekki mikið um nýbyggingar á Nesinu og þetta er frábær staður,“ segir Gylfi Gíslason, framkvæmdastjóri Jáverks, sem byggir nú í Gróttuhverfi vestast á Seltjarnarnesi.
Fyrsta húsið er tekið að rísa í þessu nýja hverfi þar sem um 170 íbúðaeiningar munu verða. Jáverk mun byggja tvö fjölbýlishús með 24-26 íbúðum og þrjú fjórbýlishús.
„Við erum núna að byrja á fyrra fjölbýlinu og það mun taka um það bil tíu mánuði að steypa upp. Fyrstu íbúðirnar fara því í sölu eftir rúmt ár, eða í upphafi árs 2024,“ segir Gylfi.
Heimild: Mbl.is