Ríkiskaup f.h. Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna óska eftir þátttakendum í forvali á arkitektahönnun vegna byggingar húsnæðis fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu (HVH) að Kleppsgörðum 2.
Þeir aðilar sem verkefnið nær yfir eru:
- Landhelgisgæslan (LHG)
- Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH)
- Neyðarlínan (112)
- Ríkislögreglustjóri (RLS)
- Tollgæslan
- Landsbjörg
- Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) – skrifstofur
Forvalið er opið öllum hæfum þátttakendum. Að loknu forvali mun verkkaupi velja fimm fyrirtæki úr hópi hæfra þátttakenda til þátttöku í lokuðu samkeppnisútboði.
Þau sem boðið verður að taka þátt í lokaða samkeppnisútboðinu fara i gegnum þrjú þrep.
Í fyrsta þrepi skila allir þátttakendur inn hönnunartillögum. Matsnefnd velur tvær tillögur til áframhaldandi þátttöku.
Í þrepi tvö uppfæra þátttakendur tillögur sínar eftir notendasamráð og umsögn matsnefndar ásamt ábendingum frá verktaka-verkfræðingateymum um hvað betur mætti fara m.t.t. kostnaðar og framkvæmda.
Að loknu þrepi tvö velur matsnefnd vinningstillögu á grundvelli 70% vægis tillögu og 30% vægis tilboðs í arkitektahönnunina. Í þrepi þrjú hefst forhönnunin. Að því loknu fer fram gerð aðaluppdrátta og svo verkhönnun.
Verkefnið:
Ákveðið hefur verið að byggja nýjar höfuðstöðvar fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðið þarf að taka tillit til fjölmargra verkefna aðila og breytilegrar starfsemi þeirra.
Niðurstaða þarfagreiningar verkefnisins gaf til kynna að aðstöðuþörf væri rúmlega 26.000 m². Er þá miðað við verkefnamiðað vinnuumhverfi sem skapar sveigjanleika til komandi framtíðar.
Í húsnæðinu verður sameiginleg björgunarmiðstöð, kennslusetur, matstofa, æfingsvæði og fleira.
Forsendur verkefnisins eru eftirfarandi:
- Viðbragðs- og þjónustustig löggæslu og viðbragðsaðila við almenning verði eflt
- Húsnæðis- og aðstöðumál aðilanna leyst með hagkvæmum hætti
- Byggt verður yfir verkefni, ekki aðila
- Samvinna, samþætting, samlegð og þekkingarmiðlun milli aðila eflist
- Verkefnamiðað vinnuumhverfi (VMV)
- Sveigjanlegt húsnæði og aðstaða
Útboð á síðari stigum verða lokuð öðrum en þeim sem tekið hafa þátt í forvalinu og uppfyllt allar kröfur þess.
Haldin verður kynning fyrir væntanlega þátttakendur á Teams 6. desember kl. 13:00.
Allar nánari upplýsingar um útboðið er að finna í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign.is.
Leiðbeiningar varðandi útboðskerfið er að finna á heimasíðu Ríkiskaupa.