Landsnet óskar eftir tilboðum í byggingu á nýju tengivirki við Korpu í Reykjavík sem lýst í útboðsgögnum þessum auðkennd sem KOR-01: Byggingavirki.
Verkið felst í jarðvinnu, byggingu og fullnaðarfrágangi á nýju tengivirki. Nýja tengivirkið er valinn staður á lóð núverandi tengivirkis við Korpu í Reykjavík.
Eftirfarandi eru helstu verkþættir verksins:
a) Jarðvinna við tengivirkisbyggingu
b) Jarðskautslagnir
c) Uppsteypa sökkla tengivirkishúss ásamt lagnakjallara tengivirkishúss
d) Burðarvirki – reising stálgrindar og uppsetning eininga á veggjum og þaki
e) Frágangur að utan og innan
f) Frárennsliskerfi og tengingar við kaldavatnslögn á lóðinni
g) Smáspenna og lágspenna
Útboðinu er skipt í 3 hluta. Heimilt er að gera tilboð í einstaka hluta eða alla hluta:
1. Eingöngu það sem snýr að jarðvinnu, undirstöður og plata byggingar (LOT A)
2. Eingöngu það sem snýr að reisingu stálvirkis ásamt frágangi tengivirkis (LOT B)
3. Allt verkið eins og því er lýst í þessum gögnum (LOT C)
Útboðsgögn afhent: | 24.11.2022 kl. 10:00 |
Skilafrestur | 15.12.2022 kl. 14:00 |
Nánari lýsingu á verkinu er að finna í útboðsgögnum sem aðgengileg eru á útboðsvef Landsnets, utbod.landsnet.is.