Home Fréttir Í fréttum Bæjarstjórn kaus milliveginn sem vegstæði við Dynjanda

Bæjarstjórn kaus milliveginn sem vegstæði við Dynjanda

141
0
Svona er gert ráð fyrir að gatnamótin verði að fossinum Dynjanda. Til vinstri sést hvernig leggja á veginn upp úr Búðavík í Dynjandisvogi. Til hægri sést veglína upp Dynjandisdal. VEGAGERÐIN

Niðurstaða virðist fengin um hvernig Vestfjarðavegur verður lagður við fossinn Dynjanda en tekist var á um tvær mismunandi veglínur í gegnum friðlandið.

<>

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar valdi að fara milliveginn.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um fyrirhugaða vegagerð í Dynjandisvogi í Arnarfirði. Fossinn Dynjandi og umhverfi hans eru friðlýst og því er ný vegarlagning þar vandmeðfarin.

Svona verður veglínan um Búðavík, samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar.
VEGAGERÐIN

Vegagerðin hafði í umhverfismati kynnt tvær leiðir sem báðar höfðu sína galla. Önnur tillagan var að fylgja núverandi vegstæði, sem þýddi að fornminjar í Búðavík færu undir veginn við breikkun hans, auk þess sem krappar beygjur myndu haldast. Hin tillagan var að skera nýjan veg upp í fjallshlíðina ofan Búðavíkur, sem þýddi talsvert rask í hlíðinni en beinni veg.

Nýr vegur fyrir Meðalnes liggur núna í fjöruborðinu. Gamli vegurinn, ofarlega til vinstri, lá uppi í hlíðinni. Verkefnið framundan er að endurbyggja veginn um Dynjandisvog.
ARNAR HALLDÓRSSON

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hefur núna samþykkt að fara milliveginn; það er málamiðlun sem Vegagerðin hafði kynnt; að fylgja núverandi vegstæði að mestu en færa veginn örlítið ofar í brekkuna í Búðavík, hlífa fornu búðatóftunum þar í fjöruborðinu, og skera veginn upp í klettana í víkinni.

Þannig tekst að gera veginn meira aflíðandi og fækka kröppum beygjum. Gatnamótin að Dynjanda færast jafnframt örlítið norðar.

Leiðin um Dynjandisdal. Veglínan fylgir að mestu núverandi vegi.
VEGAGERÐIN

Um Dynjandisdal upp með Svíná er gert ráð fyrir að fylgja núverandi veglínu að mestu, vegurinn þó réttur af á einum kafla og ein beygja tekin þar af.

Mesta breytingin verður efst við Afréttarvatn þar sem valin er ný veglína á tveggja og hálfs kílómetra kafla þar sem vegurinn fer upp á Dynjandisheiði.

Mesta breyting veglínu verður við Afréttarvatn.
VEGAGERÐIN

Og þeir sem standa á efstu fossbrún Dynjanda, svona munu þeir sjá til vegarins undir fjallshlíðinni fjær.

Sjónarhorn af fossbrún Dynjanda.
VEGAGERÐIN

Frestur til að gera athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna er til 8. desember.

Hvenær ráðist verður í vegagerðina er hins vegar óvíst en það skýrist væntanlega með næstu samgönguáætlun á nýju ári.

Heimild: Visir.is