F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hljómskálagarðurinn – Viðburðarflöt 1.áfangi, útboð nr. 15703
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í landmótun og endurtyrfingu á grasflöt ásamt niðursetningu drenlagna, jarðvinnu vegna vökvunarkerfis á grasflöt, hellulögn, gróðursetning og gerð grágrýtisveggjar með innfelldri lýsingu.
Helstu verkliðir eru jarðvinna, þökulögn, hlaðinn grágrýtisveggur, stígagerð, drenlagnir, jarðstrengir vegna lýsingar og gróðursetning.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 240 m3
- Fyllingar 1850 m3
- Jarðstrengir 880 m
- Innfelld lýsing í grágrýti 70 stk
- Drenlagnir 160 m.
- Niðurföll 5 stk.
- Grágrýtishleðsla 45 m.
- Þökulögn 6115 m2
Verklok: 1. ágúst 2023.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 10:00 þann 17. nóvember 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 2. desember 2022.