Home Fréttir Í fréttum Uppbygging við Útgarð 2 á Húsavík gengur vel

Uppbygging við Útgarð 2 á Húsavík gengur vel

210
0
Uppbygging við Útgarð 2 gengur vel hjá aðalverktakanum Trésmiðjunni Rein, sem þar reisir fyrir félagið Naustalæk, níu íbúða hús fyrir 55 ára og eldri.
Útgarður 2, séð úr norðurátt
Allar íbúðirnar eru með stæði í bílastæðahúsi og geymslu í kjallara. Einnig verða allar íbúðirnar með svalaskjóli. Rafmagnsopnun verður á umgengnishurðum og lagnir í bílageymslu fyrir rafmagnsbíla þar sem hægt verður að tengja hleðslustöðvar íbúa.
Útgarður 2, séð úr suðurátt
Áætlaður afhendingartími íbúða er 29.febrúar 2024 kl.14:00
Flestar íbúðirnar eru þegar seldar en þeir sem eru að leita sér að húsnæði eru hvattir til að hafa samband við hann Hermann Aðalgeirsson fasteignasala hjá Lögeign sem getur bætt á biðlistann ef e.h. forföll verða.
Útgarður 2, séð úr austurátt
Steinsteypir sér um alla jarðvinnu, steypu og lóðafrágang í samvinnu við aðalverktakann.
Útgarður 2, séð úr vesturátt
Heimild: Facebooksíða Steinsteypis