Hafnasamlag Norðurlands óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
Upptekt á núverandi garði um 6.500 m³
Dýpkun um 1.100 m³
Bygging nýs garðs um 6.190 m³
Fylling við Torfunesbryggju um 8.000 m³
Verkið er áfangaskipt, fyrri áfanga skal lokið eigi síður en 1. maí 2016 og þeim síðar eigi síðar en 1. júní 2016.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á hafnarskrifstofu Hafnasamlags Norðurlands, Geislagötu 9 á Akureyri, frá og með þriðjudeginum 19. janúar 2016. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. febrúar 2016 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.