Home Fréttir Í fréttum Einn flottasti lúxussalur landsins rís úr þaki Kringlunnar

Einn flottasti lúxussalur landsins rís úr þaki Kringlunnar

313
0
Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar spjallaði við Arnar Gauta um framkvæmdirnar. Mynd: Visir.is

Einn glæsilegasti lúxus bíósalur landsins er meðal nýjunga á 3. hæð Kringlunnar en salurinn opnar með frumsýningu á stórmyndinn Avatar í desember.

<>

Arkitektar og verkfræðingar Kringlunnar fengu þá djörfu hugmynd að byggja salinn ofan á þak Kringlunnar.

Öll hæðin hefur verið endurgerð frá grunni og ný mathöll mun líta dagsins ljós á næstu dögum.

Nýir veitingastaðir í bland við eldri og rótgróna staði verða staðsettir á hæðinni. Umhverfið verður allt hið hlýlegasta og mjög vandað til verka.

Gamla góða Kringlukráin fær einnig hressilega upplyftingu. Opnunartími mathallarinnar verður lengri en afgreiðslutími verslana í Kringlunni, eða til kl. 21 öll kvöld.

Þá verður nýtt Ævintýraland tekið í notkun í desember þar sem boðið verður upp á barnagæslu fyrir börn 3 – 9 ára.

Heimild: Visir.is