Borgarstjóri segir að Reykjavík muni ekki ráða hraða uppbyggingar íbúðahúsnæðis á næstu árum sem muni ráðast af fjármögnun fjármálastofnana. Hann óttast að verið sé að framkalla kulnun á uppbyggingarmarkaði húsnæðis.
Í árlegri kynningu Reykjavíkurborgar á stöðu húsnæðisuppbyggingar og hvað væri framundan sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri borgarstjóri síðustu fimm ár hafa verið metár en næstu tíu ár yrðu enn þá stærri. Gríðarleg uppbygging væri framunan um alla borg, bæði á þéttingarreitum og nýjum byggingarsvæðum.
Langtímameðaltalsfjöldi nýrra íbúða hafi verið 600 íbúðir á ári en á næstu fimm árum gæti meðaltalið orðið allt að þrjú þúsund. Það stæði því ekki á borginni við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
„Það sem að mun ráða hraðanum er ekki Reykjavík. Það mun ekki standa á okkur heldur framkvæmdafjármögnun frá lánastofnunum. Þar höfum við ákveðnar áhyggjur af því að það sé verið að framkalla mikla kulnun á þessum uppbyggingarmarkaði sem við höfum öll þörf fyrir að sé í góðu jafnvægi,“ segir Dagur.
Það hafi síðast gerst árið 2019 þegar allir bankarnir hafi dregið úr lánum til nýrra verkefna.
„Það framkallaði síðan smá dýfu í framboðinu þótt það hafi síðan náðst aftur upp. Við köllum í raun eftir umræðu um það hvernig við getum tryggt betra jafnvægi í framkvæmdafjármögnun, betra jafnvægi í uppbyggingarfjármögnun. Þannig að íbúðauppbyggingin haldist í hendur við þá miklu fjölgun íbúa sem við sjáum í Reykjavík og annars staðar,“ segir borgarstjóri.
Undanfarin misseri hefur Seðlabankinn hins vegar hækkað vexti til að vinna gegn verðbólgu. Dagur segir að vaxtalækkunin árin þar á undan hafi nánast framkallað verðbólgu að sumu leyti. Gangi áætlanir hins vegar eftir muni stór hluti nýrra íbúða verða á félagslegum forsendum.
„Það eru hin stóru tíðindin. Við erum að tryggja að á hverjum einasta uppbyggingarreit, með samningum við uppbyggingaraðila, að hluti íbúðanna sé félagslegur og þeirra sem minna hafa á milli handanna. Þannig að við fáum félagslega blöndun um alla borg,“ segir Dagur.
Þá tekur uppbyggingin víða mið af væntanlegri borgarlínu. Fyrsti áfangi hennar verður bygging Fossvogsbrúar sem framkvæmdir hefjist vonandi við á næsta ári.
Það líða nokkur ár þangað til borgarlínuvagnarnir fara að keyra. Íbúðir sem byrjað er að byggja í dag munu heldur ekki rísa fyrr en eftir tvö til þrjú ár. Þannig að við viljum að þetta haldist í hendur. Þannig að 2026, 2027 verði þetta komið á fullt. Bæði borgarlínan og íbúðir í nágrenni hennar,“ segir Dagur B. Eggertsson.
Heimild: Visir.is