Home Í fréttum Niðurstöður útboða GG Verk byggir 42 íbúðir fyrir Búseta í Laugarnesinu

GG Verk byggir 42 íbúðir fyrir Búseta í Laugarnesinu

541
0
Neðri röð t.v.: Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Búseta og Helgi Gunnarsson, framkvæmdastjóri GG Verks. Efri röð ftv.: Erla Símonardóttir, fjármálastjóri Búseta, Hlynur Örn Björgvinsson, verkefnastjóri byggingaframkvæmda Búseta, Rúnar Ólafsson, framkvæmdastjóri byggingasviðs GG Verks.

Í dag undirritaði GG samning við Búseta um að byggja 42 íbúða fjölbýli á Laugarnesreit við gamla Íslandsbankahúsið. Framkvæmdir eru að hefjast og verður fyrsta skóflustunga tekin á morgun, 19. október.

<>
Framhlið fjölbýlisins

Um er að ræða tvískipta byggingu með bílakjallara. Húsin verða staðsteypt og klædd að utan. Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og gerð, 2ja til fimm herbergja, allt frá 60 m² til rúmlega 140 m² að stærð.

Bakhlið

Þetta er þriðja byggingaverkefnið sem GG Verk  byggir fyrir Búseta frá árinu 2014.

Heimild: GGverk.is