F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Ný selalaug og tilfærsla á skála í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, útboð 15634
Framkvæmdin felst í gerð nýrrar selalaugar og tilfærslu á skála í Fjölskyldu og húsdýragarðinum.
Framkvæmdin við selalaugina felst í gerð nýrrar selalaugar ásamt því að byggja nýtt þjónustuhús fyrir seli. Tengja skal nýja selalaug við núverandi laug og aðlaga lóð umhverfis nýbyggingar.
Tilfærsla á skála felst í tilfærslu á veitingarskála. Skálinn verður fluttur vegna nýrrar viðbyggingar við veitingarskála. Nýr staður fyrir skálann er gengt selalaug, um 150 m frá núverandi staðsetningu skálans.
Tekið er fram að starfsemi verður í garðinum á meðan framkvæmdum stendur. Afmarka þarf vinnusvæði og tryggja öryggi dýra, gesta og starfsfólk garðsins. Verktaki skal hafa fullt samráð við eftirlitsaðila verkkaupa á verktíma og gefa tímanlegar verkáætlanir fyrir hverja viku
Helstu verkþættir og áfangar eru:
• Tilfærsla á skála – verklok 29. febrúar 2023
• Fullnaðarfrágangur selalaugar, húss og lóðar 18. október 2023
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 18. október 2022. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 15. nóvember 2022.