Byggja á við grunnskólana þrjá í Laugardal til að mæta fjölgun nemenda í hverfinu gangi tillaga skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur eftir. Borgarráð mun taka tillöguna fyrir á næstu vikum.
Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar.
Þar segir, að skólarnir þrír séu Laugarnesskóli, sem er fyrir börn í 1. til 6. bekk, Laugalækjarskóli sem er fyrir börn í 7. til 10. bekk og Langholtsskóli fyrir börn í 1. til 10. bekk.
„Sú tillaga að velja sviðsmynd I af þremur byggir á því að skóla- og frístundasamfélag skólanna þriggja og íbúasamtök styðja þá sviðsmynd og telja hana farsælasta.
Sviðsmynd II fól í sér að byggt yrði við Laugalækjarskóla og að tveir elstu árgangar Laugarnesskóla myndu færast þangað og að byggt yrði við Langholtsskóla.
Sviðsmynd III, fól í sér að byggður yrði unglingaskóli sem tæki við öllum unglingum í hverfinu en hinir skólarnir þrír yrðu fyrir börn í 1. til 7. bekk,“ segir á vef borgarinnar.
Þá kemur fram, að með því að byggja við skólana „halda þeir sínum skólabrag og skólagerð sem ánægja hefur verið með í skólasamfélaginu að því er segir í samantekt um tillöguna. Þar kemur einnig fram að það feli í sér stöðugleika fyrir nemendur og kennara, auk þess sem að heilstæður skóli stuðli að samfellu í námi.“
Þá er tekið fram að óverulegur munur sé á kostnaðaráætlun sviðsmyndanna þriggja, þó sé sviðsmynd I 624 milljónum króna ódýrari en sviðsmynd III.
Heimild: Mbl.is