Helmingur brúargólfs og burðarbita í nýju brúna yfir Þorskafjörð var steypt sl. föstudag samtals 130 metrar. Þetta var heljarmikil framkvæmd og stærsta steypuframkvæmd í Reykhólahreppi hingað til.
Þessi áfangi var steyptur í heilu lagi og fóru um 1.300 m3 af steypu í hann. Áður var búið að steypa sjö stöpla. Aðgerðin gekk vel og tók um 30 klst. samkvæmt Sveini Ragnarssyni á síðu Reykhólahrepps.
„Mikinn undirbúning þarf fyrir þetta stóra steypu og ekkert má fara úrskeiðis. Því voru vara tæki af öllu tagi til taks, steypubíll, steypudæla, hjólaskófla til að moka í steypustöðina og varaleiðir til vatnsöflunar.“ segir á vefsíðu Reykhóla.
Aðspurður segir Sveinn að veður og tíðarfar stjórni svo áframhaldandi steypuframkvæmdum en talað sé um að þær gætu orðið í nóvember nk. ef allt gangi upp. Það eru byggingafyrirtækið Eykt og Steypustöðin sem sjá um brúasmíðina.
Heimild: Strandir.is