F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Miðborgarleikskóli og miðstöð barna, EES útboð nr. 15653
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Framkvæmdin felst í uppbyggingu og lóðarfrágangi á nýjum leikskóla og fjölskyldumiðstöðvar við Njálsgötu 89, 101 Reykjavík. Hönnun byggir á vinningstillögu Basalt arkitekta og Landslags í hönnunarsamkeppni á vegum Reykjavíkurborgar og Arkitektafélags Íslands sem haldin var um haustmánuðum 2020.
Húsnæðið er á þremur hæðum þar sem leikskóli verður á fyrstu tveimur hæðunum og á 3. hæð verður staðsett fjölskyldumiðstöð. Á lóðinni í dag er gæsluvöllur með steinsteyptum vegg á lóðarmörkum. Núverandi byggingar á lóð verða nýttar áfram sem hluti af leikskólastarfinu. Megin byggingarefni eru krosslímdar timbureiningar auk staðsteypts tæknikjallara.
Helstu stærðir bygginga eru:
- Leikskóli og fjölskyldumiðstöð (MHL. 03) á þremur hæðum auk tæknikjallara. Megin byggingarefni er krosslímdar timbureiningar. Heildarstærð nýbyggingar er 1.435,6 m2.
- Núverandi byggingar á lóð (MHL. 01 og 02) eru á einni hæð alls 63,7 m2.
Helstu verkþættir eru:
- Uppbygging og fullnaðarfrágangur húsnæðis
- Lagning raf-, loftræsti og lagnakerfa
- Fullnaðarfrágangur lóðar
Umhverfismálum verður gert hátt undir höfði og skal Miðborgarleikskóli hljóta BREEAM Excellent vottun og er kolefnisspor hennar það lægsta af byggingum Reykjavíkurborgar, 286 kg CO2 ígildi á m2.
Tilboð verða metin með tilliti til kostnaðar og matskerfis verkkaupa, þar sem vægi kostnaðar er 90% og matskerfi 10%.
Áætluð verklok: 31. október 2024.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 20. september 2022. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 2. nóvember 2022.