Koma stálgrindarinnar tafðist
Áætlað er að viðbygging Akureyrarflugvallar verði tilbúin árið 2024. Framkvæmdin hefur þó ekki gengið áfallalaust fyrir sig vegna tafa á aðföngum til landsins. „Það er búið að steypa gólfið í viðbyggingunni og það er verið að undirbúa fyrir komu stálgrindarinnar en því miður eru tafir á henni.
Hún er að koma að utan, það er áætlað að hún komi í nóvember. Ef að stálgrindin kemur fyrir áramót, þá verða settir upp veggir og þak eftir áramót, líklegast í mars. Við sjáum að það er seinkun út af þessu og við erum að áætla að minnsta kosti sex mánaða frestun á verkinu,“ segir Hjördís Þórhallsdóttir, umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi.
Vonbrigði en ekki óviðbúið
Hjördís segir að þó seinkunin hafi verið ákveðin vonbrigði, hafi þetta ekki komið á óvart, vegna stríðsástandsins og veirufaraldurs. En þrátt fyrir þrengsli á flugvellinum gangi vel að taka á móti farþegum.
„En þetta verður allt annað þegar viðbyggingin verður komin. Við fórum í bráðabirgðalausn núna í sumar og það er búið að bæta við gámaeiningum, búa til sal fyrir sunnan flugstöðina sem raunar hjálpar okkur ef við lendum í vandræðum.“
Auk viðbyggingarinnar er unnið að gerð nýs flughlaðs sem áætlað er að verði klárt seinni part næsta árs.
Alltaf góður andi á vinnusvæðinu
Þegar fréttastofu bar að garði var mikil stemning á smiðunum Gulla og Vigni, sem nutu sólarinnar og spiluðu ljúfa tóna á meðan þeir sinntu verkinu.
Þið eruð bara hérna tveir í dag og þegar við komum áðan var bara dúndrandi tónlist, er alltaf svona stemning á vinnusvæðinu?
„Já sérstaklega þegar er svona gott veður,“ segir Guðlaugur Hólm Guðmundsson, verkstjóri.
Kannski ekki jafn mikil stemning í rigningunni?
„Jú samt, þá lætur maður græjurnar samt ganga til að stytta sér daginn.“
Heimild: Ruv.is