F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Úlfarsárdalur – stækkun hvefis. Yfirborðsfrágangur og stígagerð 2022, útboð nr. 15643
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í megindráttum í heildarfrágangi ofanvatnsrása, gerð gangstétta og útvistarstígs.
Ofanvatnsrásirnar, dekka um 545 m2, liggja meðfram Rökkvatjörn og Silfratjörn. Innifalið er afmörkun með kantsteini, endurnýjun á grasi og grágrýtishleðslum, gerð gróðurbeða og gróðursetning ásamt smíði og uppsetningu brúarhlemma. Einnig skal ganga frá gangstéttum með steypu, hellulögn og uppsetningu ljósastaura. Meðfram Skyggnisbraut skal steypa stétt meðfram núverandi hjólastíg. Útivistarstígurinn tengir saman núverandi stíg við Leirtjörnina við bílastæði við Úlfarsfellsveg. Göngubrúin er um 8 m löng og 3,7 m breið og liggur yfir útrás tjarnarinnar. Brúin er gerð úr stálbitum á steyptum undirstöðum. Klæðningin er úr timbri og handrið úr stáli. Í útrás tjarnarinnar skal hlaða grjóti. Stígurinn er malarstígur, helstu verkþættir eru gröftur og fylling samkv. kennisniðum og malarslitlag. Við frágang meðfram stíg skal endurnýta staðargróður.
Helstu magntölur verksins eru:
Útivistarstígur, lengd 410 m
Gröftur fyrir stíg og brú 1.070 m³
Fylling í stíg og að brú 1.020 m³
Mulningur á stíg 1.250 m²
Endurnýting staðargróðurs, frágangur með fram stíg 1.200 m²
Lengd brúar 8,4 m
Mót (sökkul og veggjamót) 15 m²
Bendistál 750 kg
Steypa 6,4 m³
Stál 1.380 kg
Brúargólf, klæðning úr Azobe harðvið 32 m²
Brúarhlemmar yfir ofanvatnsrásir (1,1 × 4,0 m) 4 stk
Hellulögn 220 m²
Steypt gangstétt 625 m²
Þökulögn í ofanvatnsrásum 350 m²
Kantsteinn 500 m
Ljósastaurar 5 stk
Lokaskiladagur verksins er 1. júní 2023.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 6. september 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 20. september 2022.