Landsnet óskar eftir tilboðum í verkið RAN-01-21.
Í verkinu felst jarðvinna, forsmíði og uppsetning á undirstöðum fyrir háspennubúnað í rofareitum fyrir aflspenna SP5 og SP6 í tengivirki Landsnets, Rangárvöllum. Einnig er jarðvinna og lagning á 145 kV háspennustrengjum frá rofareitum að spennum sem og lagning á 72.5 kV háspennustreng frá spenni SP5 að tengivirkishúsi.
Útboðsgögn afhent: | 04.08.2022 kl. 15:20 |
Skilafrestur | 01.09.2022 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 01.09.2022 kl. 14:00 |
Nánari lýsingu á verkinu er að finna í útboðsgögnum sem aðgengileg eru á útboðsvef Landsnets.