Opnun tilboða 26. júlí 2022. Hafnasamlag Norðurlands óskaði eftir tilboðum í verkið „Akureyri – Torfunefsbryggja, endurbygging stálþils 2022“.
Helstu verkþættir eru:
· Fylla framan við núverandi stálþil, 23.000 m3.
· Rif á þekju steyptri þekju og kantbita, 1.200 m2.
· Rif á furubryggju við enda Torfunefsbryggju.
· Reka niður 117 stk. Tvöfaldar stálþilsplötur af gerðinni AZ14-770 og AZ12-770 fyrir bakþil.
· Reka niður 151 stk. tvöfaldar stálþilsplötur af gerðinni AZ14-770 10/10 og ganga frá stögum og stagbitum.
· Steypa um 234 m langan kantbita með pollum, kanttré og stigum.
· Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
· Reka niður 146 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ 22-800 og eina einfalda sömu gerðar
· Steypa 62 akkerisplötur og uppsetning staga.
· Steypa um 230 m langan kantbita með pollum og setja upp kanttré, stiga og þybbur.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2023.