Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegur (1) um Hornafjörð. Verkið felur í sér styttingu Hringvegarins um 12 km með gerð 19 km langs vegar er kemur til að liggja yfir norðanverðan Hornafjörð. Innifalið í verkinu er smíði fjögurra brúa.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í desember 2025.
Útboðsgögn eru aðgengileg og afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginu 27. júlíí 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. ágúst í 2022.
Ekki verður haldnir sérstakir opnunarfundir en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu. Þriðjudaginn 6. september 2022 verður bjóðendum tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.