F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Veitna er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vetrarþjónusta gönguleiða í Reykjavík 2022-2025, austurhluti – Árbær, EES útboð 15616
Um er að ræða snjóhreinsun og hálkuvörn gönguleiða í þrjá vetur, þ.e. veturna 2022-2023, 2023-2024 og 2024-2025. Um er að ræða gönguleiðir í Árbæ.
Helstu magntölur:
- Þjónustuflokkur 1 – 27,7 km
- Þjónustuflokkur 2 – 17,6 km
- Þjónustuflokkur 3 – 17,1 km
Útboðsgögn verða aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl.15:00, föstudaginn 22. júlí n.k., á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella “Nýskráning“.
Vakin er athygli á að allar fyrirspurnir verður að senda gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 22. ágúst 2022.