Fyrirhugað er að hefja framkvæmdir við nýtt fjölbýlishús á fyllingunni við tjaldsvæðið á Bíldudal nú á allra næstu dögum.
Vegna þeirra framkvæmda sem fara þar af stað verður að færa aðkomu að tjaldsvæðinu nær Byltu eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd en lokað verður fyrir aðgengi að tjaldsvæði frá Hafnarbraut um Sæbakka og því verður ekki lengur hægt að komast inn á svæðið þá leið.
Heimild: BB.is