Samkvæmt fjárhagsáætlun Grindavíkurbæjar verður eignfærð fjárfesting fyrir árið 2016 um 455 milljónir króna. Þar má helst nefna fjölgun íbúða fyrir aldraða í Víðihlíð, fyrsta áfanga í endurnýjun á Miðgarði, hafist verður handa við hönnun og útboð á nýju íþróttahúsi og breytingar og stækkun á bæjarskrifstofunum.
Þá má nefna ýmislegt viðhald við gamla sundlaugarhúsið, þar á meða endurnýjun á suðurhlið, við grunnskólann á Ásabraut, Laut, ýmsar lagfæringar á gangstéttum, lýsingu, áframhaldandi uppbygging göngu- og hjólastíga, og þá er talsverð gatnagerð. Einnig verður lögð áhersla á gróðursetningu og þá verður hafist handa við fyrsta áfanga á útikennslusvæði við Sjómannagarðinn, svo eitthvað sé nefnt.
Heimild: Grindavík.is