Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: Kvíslaskóli: Færanlegar kennslustofur.
Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna verkefnisins: Kvíslaskóli: Færanlegar kennslustofur.
Helstu verkþættir eru:
Verkið felur í sér uppsetningu á átta færanlegum kennslustofum
Innifalið í verði skal vera allur kostnaður við smíði kennslustofueininga, undirstöður, pallar og skárampar frá rýmingarleiðum, gröftur, lagnir og lagning þeirra, flutningur og kranavinna og frágangur umhverfis í verklok.
Kennslustofueiningarnar skulu vera byggðar á stálbitum, eða vera þannig úr garði gerðar að hægt sé að lyfta þeim upp í heilu lagi, til flutnings, og koma fyrir annars staðar, þegar þörf fyrir viðbótar kennsluhúsnæði breytist.
Kennslustofueiningar og framkvæmdin öll, skal standast kröfur byggingarfulltrúa og gildandi lög og reglugerðir, sem eiga við þessa framkvæmd.
Verkinu skal að fullu lokið í 14. ágúst 2022 í samræmi við ákvæði útboðsgagna.
Útboðsgögn eru eingöngu afhent rafrænt frá og með þriðjudeginum 12.júlí 2022. Beiðnir um útboðsgögn má senda á netfang þjónustuvers Mosfellsbæjar, mos@mos.is, þar sem tilgreina þarf nafn fyrirtækis og tengiliðs. Einnig er hægt að hafa samband við þjónustuver Mosfellsbæjar í síma 525-6700.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en mánudaginn 18. júlí 2022 kl.10:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Ekki verður haldinn opnunarfundur en niðurstöður verða birtar á vef Mosfellsbæjar.