Borgarráð Reykjavíkur samþykkti í fyrradag að bjóða út framkvæmdir við gerð hjólastíga á þessu ári, en áætlaður heildarkostnaður framkvæmdanna er 1.400 milljónir.
Áætlað er að hlutur borgarinnar verði 710 milljónir á móti 690 milljóna framlagi í gegnum samgöngusáttmálann. Eru þessar framkvæmdir í takt við plön sem sett höfðu verið fram fyrr á árinu og fjallað var um í Hjólablaði Morgunblaðsins.
Þær framkvæmdir sem nú var samþykkt að bjóða út flokkast í þrjá flokka; verkefni samkvæmt hjólreiðaáætlun borgarinnar, verkefni samkvæmt samgöngusáttmála og svo aðrir stígar.
Í fyrsta flokknum eru eftirtalin fjögur verkefni og er heildaráætlun fyrir þau upp á 390 milljónir:
- Réttarholtsvegur – Sogavegur (stígur meðfram stokk) – 100 milljónir
- Bústaðavegur / Háaleitisbraut (gatnamót) – 100 milljónir
- Elliðaárdalur. Rafstöð að Bíldshöfða (framhald frá 2021) – 130 milljónir
- Þverársel sunnan við íþróttasvæði ÍR (framhald frá 2021) – 60 milljónir
Undir samgöngusáttmálann heyra önnur fjögur verkefni og er áætlaður heildarkostnaður þeirra 690 milljónir. Fellur sá kostnaður því ekki á borgina.
- Skógarhlíð. Frá Litluhlíð að Skógarhlíð 2-4 -200 milljónir
- Bústaðavegur. Við Sprengisand (framhald frá 2021) – 150 milljónir
- Elliðaárdalur. Vatnsveitubrú að Grænugróf – 120 milljónir
- Elliðaárdalur. Göngu- og hjólabrú við Dimmu. Verkefni í umsjón Vegagerðarinnar – 220 milljónir
Að lokum eru tvö verkefni sem flokkast sem aðrir stígar.. Heildarkostnaður þeirra verkefna er 320 milljónir og er það hlutur Reykjavíkur.
- Elliðaárdalur. Stígur í stað stokka – 120 milljónir
- Kjalarnes við Hringveg 1, 1. áfangi. (framhald frá 2021). Verkefni í umsjón Vegagerðarinnar – 200 milljónir
Þó verkefnin fari í útboð í ár er ekki þar með sagt að þau verði kláruð á þessu ári. Eins og áður hafði verið fjallað um í Hjólablaðinu eru t.d. takmarkanir á framkvæmdatíma við brýr og stíg neðarlega í Elliðaárdal (verkefnið stígur í stað stokka) og er aðeins hægt að vinna þar frá 15. október til 15. maí ár hvert. Stefnt er að framkvæmdum þar í vetur og gæti því verið opnað fyrir umferð næsta sumar.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bókuðu með afgreiðslu málsins í borgarráði að framkvæmdunum væri fagnað, en bent var á að þetta væru aðallega stofnstígar á milli hverfa, en ekki þétting stígakerfisins innan hverfa líkt og hjólreiðaáætlunin leggur til.
„Margt bendir til þess að innan hverfa sem umlykja helstu atvinnu- og þjónustuhverfi borgarinnar séu tækifæri til enn frekari fjölgunar hjólandi. Styðja þarf við þá þróun með með uppbyggingu stíga innan þessara hverfa, samhliða fjölgun stofnstíga,“ segir í bókuninni.