Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í framlengingu á Eyrarflöt, Siglufirði.
Verktaki skal framlengja Eyrarflöt til suðurs um ca 100 m. Leggja skal fráveitulagnir, niðurföll og brunna. Tengja skolp inná eldri steypta lögn í brunni og veita ofanvatni í tjörn sunnan götu. Verktaki bætir fyllingu ofaná núverandi yfirborð og gengur frá jöfnunarlagi undir malbikun götu og stéttar með sama hætti og fyrir er í götunni.
Verktími er frá 1. ágúst 2022 til 15. september 2022.
Hægt er að nálgast útboðsgögn rafrænt á netfangið armann@fjallabyggd.is
Tilboði skal skila á skrifstofu Fjallabyggðar Gránugötu 24, Siglufirði, í lokuðu umslagi sem sýni nafn bjóðanda, merktu:
“Eyrarflöt, Siglufirði” eigi síðar en kl 14:00 22.07. 2022.
Opnunartími tilboða:
Föstudaginn 22. júlí 2022 kl. 14:00 á skrifstofu Fjallabyggð