Opnun tilboða 5. júlí 2022. Fjallabygðarhafnir óskuðu eftir tilboðum í verkið
„Siglufjörður – Endurbygging innri hafnar 2022“.
Helstu verkþættir eru:
- Grafa fyrir akkerisstögum og skera gat í eldra þil fyrir akkerisstögum.
- Fjarlægja polla og skúr við núverandi bryggju.
- Jarðvinna, fylling og þjöppun.
- Reka niður 105 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ14-770 10/10 og ganga frá stagbitum og stögum.
- Steypa um 160 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. maí 2023.