Metnaðarfull sigurtillaga að uppbyggingu í Akranesbæ mun bjóða upp á byggingu hótels með útsýni að Snæfellsjökli, mögulegt baðlón, strand- og göngustíga og blandaða byggð íbúða- og atvinnuhúsnæðis. Þetta er fyrirhugað á Breiðinni á Akranesi, neðst á Skipaskaga, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Tillagan, Lifandi samfélag við sjó, sem kom frá arkitektastofunni Arkþing/Nordic og Eflu verkfræðistofu, hlaut fyrsta sæti í hugmyndasamkeppni um framtíð svæðisins og um leið 15 milljónir króna í verðlaun.
Breið þróunarfélag efndi til samkeppninnar með það að markmiði að byggja upp Breiðina og styðja við atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Akranesi til framtíðar. Samtals bárust 24 tillögur frá yfir 50 aðilum, að miklum meirihluta frá alþjóðlegum arkitekta-, hönnunar- og skipulagsstofum.
„Við erum mjög spennt fyrir möguleikunum sem þessar tillögur færa okkur. Nú höfum við unnið síðan í júní 2020 með Brimi að því að efla atvinnustarfsemi við Breiðina og hluti af því verkefni var að fara í gang með hugmyndasamkeppnina,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi.
Heimild: Mbl.is