F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Vogaskóli – Endurgerð lóðar 2022, 1.áfangi, útboð nr. 15511
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar Vogaskóla við Ferjuvog 2, 104 Reykjavík.
Um er að ræða tvö aðskilin svæði innan lóðar, annar vegar körfuboltavöll á suð-vestur hluta lóðarinnar sunnan við skólabyggingu en það svæði er u.þ.b 400 m² að stærð og hins vegar sparkvöll og svæðið umhverfis hann en það svæði er um 900 m² að stærð.
Heildarstærð svæða er um það bil 1300 m². Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á viðkomandi svæði. Aðgengi fyrir alla, yfirborðsefni körfuboltavallar, battavallar og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.
Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur á yfirborði körfuboltavallar og battavallar.
Áætluð verklok: 30. september 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 28. júní 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 14. júlí 2022.