F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Furugerði 23, aðkoma að lóð, útboð nr. 15597
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00 þann 28. júní 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 13. júlí 2022.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Um er að ræða gerð aðkomugötu að eystri enda lóðar Furugerðis 23 frá Espigerði og framlengingar á neðri enda Furugerðis með beygju inn í bílskýli í vestur enda lóðar Furugerðis 23. Í verkinu felst vinna við lagnir, jarðvegsskipti, bygging stoðveggjar, malbikun og ræktun.
Verkið felst í megindráttum í eftirfarandi:
- Rif og förgun á malbiki og kantsteini
- Jarðvegsskipti í götustæði
- Malbikun gatna
- Gerð nýrra steyptra kantsteina
- Gerð nýrra niðurfalla
- Bygging stoðveggjar
- Aðlögun að núverandi yfirborði við götur
- Uppsetning og tenging ljósastólpa
Helstu magntölur:
- Gröftur 660 m3
- Fylling 540m3
- Malbik 50 m2
- Vélsteyptur kantsteinn 500 kg.
- Stoðveggur 1.951 kg.
- Grasþökur 130 m
Áætluð verklok: 15. október 2022.