F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hverfið mitt 2022, austur – Stálstigar í Breiðholti og Gufunesi, útboð nr. 15585
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Um er að ræða smíði á stálstiga milli efra og neðra Breiðholts og stálstiga í Gufunesi frá göngustíg niður í fjöru. Verkið snýst um útvegun og framleiðslu á fullbúnum stiga með þrepum, millipöllum og handriðum ásamt undirstöðum og jarðvegsskrúfum. Stiginn skal vera heitgalvanhúðaður og ristarþrep og pallar skulu hafa gott hálkuviðnám.
Útboðsgögn og teikningar verða aðgengileg á útboðsvef frá 13:00, 16. maí 2022.
Áætluð afhending: 30. september 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 21. júní 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 11. júlí 2022.