F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
HAGASKÓLI – Utanhúsklæðning, þak og drenlagnir, útboð nr. 15583
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Um er að ræða Hagaskóli – aðalbygging og felst verkið í endurnýjun glugga, hurða, þaks og einangra/klæða húsið að utan með steinklæðningu. Heildarstærð aðalbyggingar er 3.169 m²
Helstu magntölur:
Endurnýjun þaks 1.150 m²
Einangrun og klæðning utanhúss 810 m²
Endurnýjun glugga og útihurða 160 stk.
Frárennslis, jarð og- regnvatnslagnir í jörð 478 m
Áætluð verklok: 31. janúar 2023.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 16. júní 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 7. júlí 2022.