F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Hverfið mitt 2022 – Vestur – Vesturbær, útboð nr. 15580
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2022 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.
Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, lagnir, timburvirki, steypuvirki, stálvirki, hellulögn, gróðursetning og þökulögn.
Helstu magntölur:
- Gröftur 660 m3
- Fylling 540m3
- Mótasmíði 50 m2
- Bendistál 500 kg.
- Stálvirki 1.951 kg.
- Gröftur fyrir lögnum 130 m3
- Vatnslögn 61 m
- Fylling í skurði 130 m3
- Steinalögn 165 m2
- Þökulögn 1000 m2
- Tré -stofntré 14 stk.
- Runnar 125 stk.
Áætluð verklok: 31. október 2022.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 12:20 þann 15. júní 2022.
Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:15 þann 29. júní 2022.