Hafnir Múlaþing óskar eftir tilboðum í verkið „Seyðisfjörður – Engrobryggja, harðviðarbryggja 2022“.
Helstu verkþættir eru:
· Jarðvinna: gröftur fyrir landvegg, fylling og grjótvörn.
· Steypa 55m landvegg.
· Reka 67 bryggjustaura úr Greenheart harðvið.
· Byggja 560 m² bryggju úr Greenheart harðvið.
· Uppsetning á 30 stk DD250 þybbum á bryggju
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 14. júní 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.