Opnun tilboða 10. maí 2022. Vegagerðin, í samstarfi við Veitur, Rarik og Borgarbyggð óskaði eftir tilboðum í endurbætur og lagnagerð á um 550 m kafla á Borgarbrautar í Borgarnesi.
Helstu magntölur eru:
Gröftur lagnaskurða 9.300 m3
Fráveitulagnir 1.300 m
Kaldavatnslagnir 650 m
Hitaveitulagnir 950 m
Malbikun 9.700 m2
Hellulögn 1.400 m2
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023.